18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í C-deild Alþingistíðinda. (2667)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson) :

Herra forseti. Menntmn. hafði til umr. frv. um þjóðleikhúsið, það átti þar heima, einnig frv. um félagsheimili, sem einnig átti þar heima, og loks frv. um styrk til lestrarfélaga og frv. um skólamál, sem öll áttu þar heima. Þessi frv. voru einnig öll um útgjöld, en þetta er um tekjuöflun ríkissjóðs. Rök forseta eru því með öllu haldlaus.