18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í C-deild Alþingistíðinda. (2674)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Ég álít, að hæstv. forseti hefði átt að úrskurða þessa brtt. frá af þeim ástæðum, sem hér hafa komið fram. Mér sýnist hún ekki geta staðizt eftir þingsköpum. En ef málinu verður frestað nú, þá er alveg útséð um, að það verði afgr. á þessu þingi. Og þá vil ég fyrir mitt leyti vinna það til að samþ. afbrigði fyrir till. og því verði svo skotið undir úrskurð hv. d. og þá í trausti þess, að hún neiti um afbrigði.