18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (2677)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sigfús Sigurhjartarson:

Ég vil yfirleitt ekki neita um afbrigði, þótt brtt. sé of seint fram komin eða skrifleg. En hér vil ég synja um afbrigði, þar sem till. er þess eðlis, að hún getur ekki samkvæmt þingsköpum komið til atkv. Ég segi nei.