18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í C-deild Alþingistíðinda. (2694)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sigurður Kristjánsson:

Ég er mótfallinn málinu og þá allri þrengingu skattsins. Ef það ætti hins vegar að leggja þennan skatt á, þá tel ég rétt, að hann nái yfir allt það svæði, sem gert er ráð fyrir í upphafi, og ég er á móti þessari þrengingu og segi því nei.

Brtt. 593 samþ. með 17:3 atkv.

Brtt. 511 kom ekki til atkv.

Frv. svo breytt, samþ. með 16:5 atkv. og stgr. til Ed.