23.03.1948
Efri deild: 87. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (2699)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Í hv. Nd. voru vinnubrögðin þannig við afgreiðslu þessa frv., að d. neitaði að veita afbrigði fyrir sanngjarnri brtt., og ég lét þess þá getið, úr því að frv. væri stefnt með slíkum hætti í tvísýnu í Nd., að ég mundi ekki veita afbrigði fyrir málinu í Ed., er það kæmi þangað. Ég kann ekki við að neita um afbrigði í nafni ríkisstjórnarinnar, en ég leyfi þau ekki.