20.12.1947
Efri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (272)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (ÞÞ) :

Mér hafa borizt tvær skriflegar brtt. frá hv. meiri hl. fjhn., sem frsm. hefur þegar lýst, og er önnur brtt. við 14. gr. frv., að í stað orðsins „forsjármaður“ komi: maður. —Hin brtt. er við 1. tölul. brtt. á þskj. 245 og er þannig, að í staðinn fyrir „flökum“ í endi fyrstu málsgr. komi: fisktegundum.

Ég mun leita afbrigða fyrir báðum þessum brtt. í einu, þær eru bæði skriflegar og of seint fram komnar.