23.02.1948
Efri deild: 67. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í C-deild Alþingistíðinda. (2788)

66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson) :

Það hafa þegar gengið atkv. um þetta mál, og er sjáanlegt, að teknar verða inn fleiri landshafnir en þegar hefur verið gert. Þetta hefur breytt viðhorfinu, og vil ég því óska þess að umr. verði frestað, svo að sjútvn. geti athugað málið, þar sem það getur komið til mála, að brtt. verði bornar fram um fleiri landshafnir, eins og á Þórshöfn og við Rif. Ég lofa því að taka málið fyrir á næsta fundi n., sem verður á miðvikudag, svo að þetta þarf ekki að tefja málið mikið.