20.12.1947
Efri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (279)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Gísli Jónsson:
Ég vil benda á það, að þessi till. er fram komin til þess að bæta upp það, sem tekið er af sjómönnum með 1. mgr. 14. gr. Það var ég á sama máli um, að ætti beinlínis að takmarka við þá stétt, vegna þess að tekjur sjómanna eru nú skattlagðar. Það átti aldrei að ná til sjúkrahúsa. Þar er nú fjöldi manns, sem reiknað er kr. 12.00 í fæðispeninga á dag. Þetta fólk á ekki heima í sjúkrahúsum, einhleypar hjúkrunarkonur og starfskonur, sem aldrei var hugsað, að ákvæði þetta kæmi til góða. Ég mun greiða atkv. gegn þessari till., úr því að þm. hafa ekki getað undirbúið hana öðruvísi en svo, að hún hefði þessi áhrif.