01.03.1948
Efri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í C-deild Alþingistíðinda. (2813)

73. mál, bindindisstarfsemi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Ég sá ekki þessar brtt., sem fram eru komnar við frv., fyrr en nú á fundinum, og þó að ég hafi vitað áður, að brtt. mundu koma fram í þessa átt, þá er ég hins vegar ekki reiðubúinn til þess að ræða þær í einstökum atriðum. Ég veit þó, að Stórstúkan og bindindismenn telja það form á frv., sem brtt. gera ráð fyrir, óaðgengilegt. Ég legg því eindregið á móti því, að þessar brtt. verði samþ. En til frekari athugunar á málinu vil ég stinga upp á því, að n. taki brtt. aftur til 3. umr. til athugunar, en frv. verði látið ganga til 3. umr. í dag.