04.03.1948
Efri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í C-deild Alþingistíðinda. (2834)
73. mál, bindindisstarfsemi
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hæstv. dómsmrh. sagði, að dómur manna um það, hvort styrkja beri bindindisstarfsemina í landinu, kæmi fram í því, hvernig menn greiddu atkv. um þetta frv. Ég tek afstöðu til þessa máls eftir því, hvort ég álít, að með samþykkt þessa frv. sé unnið á, réttan hátt að því að styrkja bindindisstarfsemina í landinu í heild. Ef verja á þessu fé til þess að byggja fyrir það bindindishöll, eins og kemur að vísu fram í grg. frv. og kom fram í ræðu hv. 1. landsk. (SÁÓ), þá er ég á móti málinu. Því fé, sem varið er til bindindisstarfsemi, tel ég, að eigi að verja á þann veg að það kæmi að meiri notum en með því að verja því í bindindishöll. Þetta vildi ég láta koma skýrt fram vegna þess, sem hæstv. dómsmrh. talaði um andstöðu gegn málinu.