10.02.1948
Efri deild: 56. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í C-deild Alþingistíðinda. (2899)

137. mál, sjúkrahús o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil þakka ráðh., þó að ég sé í vafa um, að hann hafi fengið réttar upplýsingar í þessu máli eða þá að hann hafi fengið öll gögn. Hins vegar skal ég verða við þeim tilmælum að tefja ekki afgreiðslu málsins.