15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í C-deild Alþingistíðinda. (2923)

140. mál, fiskiðjuver í Höfn í Hornafirði

Forseti (BSt) :

Ég vil líta svo á, að umr. um þetta mál sé lokið, því að þegar ég tók það fyrir síðast og tveir hv. þdm. voru á mælendaskrá, þá var annar ekki við, hafði raunar fjarvistarleyfi, en hinn hv. þm. féll frá orðinu. Mun ég því líta svo á, að umr. sé lokið. og láta atkvgr. fram fara, ef enginn mælir því í gegn.