20.12.1947
Efri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (293)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Gísli Jónsson:
Þegar frv. þetta var fyrst lagt fram fyrir stjórnarflokkana, var það á þann veg, að ljóst var, að það mundi á margvíslegan hátt lama afvinnulífið í landinu, ef það yrði að l. óbreytt. Fyrir harðfylgi einstakra sjálfstæðismanna og sérstakan velvilja og skilning hæstv. fjmrh. á málinu hefur tekizt að fá gerðar ýmsar mikilsverðar breyt. á frv., svo sem framlag til aflatryggingarsjóðs, hagkvæmari ábyrgðir og vaxtakjör fyrir sjávarútveginn o.fl., og þótt enn séu margir ágallar á frv., tel ég, að þær umbætur, sem fengizt hafa á því, séu svo mikilsverðar fyrir atvinnuvegina, að ég vil ekki verða valdur að því, að þær nái ekki fram að ganga, og segi því já.