13.02.1948
Efri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í C-deild Alþingistíðinda. (2931)

155. mál, húsaleiga

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs aðeins í því augnamiði að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki mál þetta út af dagskrá. Ég vil færa þá ástæðu fyrir þessu, að félmrh., hæstv. forsrh., sem þetta mál heyrir undir, mundi eflaust æskja þess að vera hér við umr. á fyrsta stigi málsins og geta lagt það til málanna, sem honum sýndist, en að því er ég bezt veit, er hann enn ekki kominn til bæjarins, þótt hann sé kominn til landsins.