13.02.1948
Efri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í C-deild Alþingistíðinda. (2932)

155. mál, húsaleiga

Forseti (BSt) :

Mér þykir rétt að verða við þessum tilmælum hv. l. landsk. þm. (SÁÓ) og tek rök hans til greina, en vil vænta þess út af meðferð þessa máls hér á dagskrá, að framvegis verði afgreiðsla þess ekki hindruð af því, að menn séu að forfallalausu fjarverandi úr hv. d., en í þessu tilfelli eru forföll hæstv. félmrh. þannig, að þau ber að taka til greina, og eins er um hv. þm. Seyðf. (LJóh). sem hefur tilkynnt sjúkdómsforföll, en hann hefur verið ákveðinn frsm. þessa máls, þótt skjölin beri það ekki með sér.