23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í C-deild Alþingistíðinda. (2971)
155. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Mér þykir leitt að sjá, að hæstv. forseti hefur ekki séð sér fært að taka á dagskrá 155. mál. Nál. var útbýtt 15. marz. Og ég hafði vænzt þess, að hann tæki málið til afgreiðslu. áður en hann slítur fundum í þessari d. Vildi ég mælast til þess, að eftir þennan fund verði haldinn nýr fundur til að taka það mál til athugunar. Bæði nál. komu 15. marz. og nú er sá 23. Ég á bágt með að skilja, að þrátt fyrir annríkið hafi ekki verið hægt að taka þetta mál á dagskrá, því að önnur, sem skemmra hafa verið á veg komin, hafa verið tekin fyrir.