22.03.1948
Efri deild: 84. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í C-deild Alþingistíðinda. (2988)
194. mál, menningarsjóður
Frsm. (Bernharð Stefánsson) :
Herra forseti. Menntmn. þessarar d. flytur þetta frv. að beiðni hæstv. menntmrh. Hún vildi ekki skorast undan því, þó að hún hefði litla trú á, að frv., sem ekki er alveg lífsnauðsyn að koma gegnum þingið, næði fram að ganga, þegar það er fyrst borið fram nú. Frv. er ósköp einfalt í sjálfu sér, og þarf ég því ekki margt um það að segja. Ég hafði búizt við, að hæstv. menntmrh. gerði grein fyrir frv. sjálfur, því að n. hefur tekið það til flutnings án allrar ábyrgðar, eins og getið er um í upphafi grg. Ég er því ekki annað að gera en að mæla með, að frv. verði vísað til 2. umr. Til n. mundi tæplega vera þörf að vísa því, þar sem það er flutt af n. En þó að ég geri þessa till., þá get ég engu lofað um, að tími vinnist til að afgr. frv., ef þinglausnir fara fram eins og ætlað er.