26.11.1947
Sameinað þing: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (3043)

44. mál, ljóskastarar í skipum o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu samþ., að þessari till. verði vísað til n. En ég vil leyfa mér að benda hv. þm. á það í sambandi við ummæli hans um eldri togara, að mér er kunnugt um, að ljóskastarar hafa verið keyptir og settir á skipin, er þau koma í höfn. Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða málið að öðru leyti, en ég er fús til að leggja gögn fyrir nefndina í sambandi við málið í heild.