17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í D-deild Alþingistíðinda. (3116)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Á þskj. 45 er till. til þál. um yfirfærslu á gjaldeyri til námsmanna. Á þskj. 98 er brtt. frá mér, sem er tímabundin, svo að ef málið verður ekki afgreitt í þessum mánuði, er hún gagnslaus. Ég skal ekki orðlengja um þetta, en það er mjög aðkallandi. að forseti sjái sér fært að afgreiða þetta mál fyrir jól, og fer ég þess eindregið á leit við hann.