20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (3120)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég lýsi yfir, að ég felli mig alveg við þær breyt., sem allshn. hefur gert á þessari þáltill. Ég lýsti hér við fyrri hluta umr. málsins, að ég legði enga höfuðáherzlu á það, hvort sá aðili, sem sent væri til til umsagnar um það, hverjir fá, skuli gjaldeyrisleyfi vegna námskostnaðar erlendis, væri þriggja manna nefnd eða þetta haft eins og í brtt. á þskj. 240 er gert ráð fyrir. Tel ég engu skipta, þó að till. væri breytt þannig. Ég felli mig alveg við þessa breyt. hv. allshn. Og ég þakka þeirri hv. n., og sérstaklega hv. form. hennar, fyrir undirtektirnar við meðferð málsins.