10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í D-deild Alþingistíðinda. (3145)
39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Út af þessari yfirlýsingu hæstv. ráðh. vildi ég biðja hæstv. forseta að slíta ekki þessari umr. Ég mun bera fram brtt. í þessu máli, þar sem þetta sé alveg ákveðið, svo að hv. alþm. gefist kostur á að greiða atkv. um það efnislega, hvort íslenzk yfirvöld ætlast til þess, að slitnar séu sundur fjölskyldur þeirra námsmanna, sem stunda nám erlendis fyrir íslenzku þjóðina. Það hefur hvað eftir annað komið fram hjá hæstv. ráðh., að hann vilji ekki gefa yfirlýsingar um það, að þannig skuli að farið, að þetta verði ekki gert.
Og þegar hæstv. ráðh. segir, að það standi ekki í hans valdi, þá er það misskilningur. Það stendur í valdi ríkisstj. að skipta um þau gjaldeyrisyfirvöld, sem ekki vilja hegða sér eins og siðaðir menn. Þess vegna óska ég þess, að hæstv. forseti slíti ekki umr. þessari nú, því að ég mun bera fram brtt., til þess að það fái að sýna sig, hvað eigi að líða gjaldeyrisyfirvöldunum í landinu í þessum efnum, og hvort hv. alþm. vilja láta svelta þá, sem gifta sig á meðan þeir stunda nám erlendis, og til þess að úr því verði skorið, hvort hæstv. menntmrh. vill vera með í hópi þeirra, er það vilja gera.