17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (3150)
39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hef flutt hér brtt. á þskj. 477, sem er um umorðun á fyrri málslið meginmálsgr. á brtt. á þskj. 434, sem ég er líka flm. að, og er þetta gert eftir að hafa heyrt yfirlýsingu frá hæstv. menntmrh. hér við umr., síðast þegar málið var rætt hér. Það kom þá beinlínis fram, sem einnig kemur fram í rökst. dagskrártill., sem hv. þm. V-Húnv. las nú upp, að það hefur verið gert um þetta samkomulag milli hæstv. ráðh., viðskiptan. og menntamálaráðs á þeim grundvelli, að mál þessi verði ekki afgreidd á þeim grundvelli, sem óskað hefur verið eftir, heldur þeim grundvelli, að ekki sé látinn nægilegur gjaldeyrir til þeirra manna, sem stunda nám erlendis og hafa fyrir fjölskyldu að sjá, og óska ég því eftir, að till. komi til atkv. í trausti þess, að svo margir alþm. séu þeirrar skoðunar, að ekki beri að svelta þá námsmenn, sem hafa fyrir fjölskyldu að sjá, þá sem fóru á sínum tíma með sína fjölskyldu vegna þess, að ekki voru lögð bönd á yfirfærslu.