20.12.1947
Neðri deild: 41. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

120. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Ásgeir Ásgeirsson:

Hv. 6. þm. Reykv. var eitthvað að spyrja úr sæti sínu um nál. í þessu máli. Ég vil því taka það fram, að fjhn. hefur ekki skilað áliti sökum þess, að ekki hefur unnizt tími til að prenta það. En þar sem þetta frv. hefur áður verið samþ. sex sinnum af öllum þm., leyfir n. sér að fara fram á, að það verði nú samþ. í sjöunda sinn, án þess að hún skili um málið sérstöku áliti eða geri nánari grein fyrir því.