10.10.1947
Sameinað þing: 5. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í D-deild Alþingistíðinda. (3397)

9. mál, markaðsleit í Bandaríkjunum

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Það er örstutt viðbót við það, sem ég sagði áðan.

Mér komu fyrst í hug, af því að þessi till. er eingöngu miðuð við Bandaríkin, tilraunir þær, sem sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur haft þar með höndum. En ég vil út frá ummælum hv. þm. Barð., að fiskimálan. geti séð um þetta, geta þess, að eftir því sem ég veit bezt, þá hefur n. áður leitað samvinnu við ýmsar útflutningsstofnanir með markaðsleitir almennt fyrir augum, og fer þá vel á því, eins og hann minntist á, að hún sé til ráðuneytis kvödd í þessu máli, sem hér liggur fyrir.