19.11.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í D-deild Alþingistíðinda. (3578)
63. mál, fæðingardeildin í Reykjavík
Katrín Thoroddsen:
Aðeins örfá orð. Mér finnst það hefði átt að vera sjálfsagður hlutur, að læknirinn, sem þarna átti að starfa, hefði haft hönd í bagga með öllu fyrirkomulagi fæðingardeildarinnar, og hvað viðvíkur ræðu hv. þm. S-Þ., þá vil ég árétta þá skoðun mína, að yfirlæknisstaðan við fæðingardeildina sé engin fígúrustaða. Annars ætla ég ekki að ræða mikið það, sem hv. þm. sagði um Guðmund Thoroddsen, en vil aðeins segja það, að það kemur ekki oft fyrir og sennilega ekki framar, að menn taki sérgrein bæði í handlækningum og fæðingum. Þess vegna minnti ég líka á, að það eru ekki nema 4 ár þar til hann lætur af störfum. Annars sé ég ekki ástæðu til að taka neitt aftur af því, sem ég sagði. —
Ég held svo, að það hafi ekki verið fleira, sem ég vildi segja. Ég get þó samsinnt hv. þm. S-Þ. í því, að Reykjavíkurbær hafi brugðist skyldu sinni í þessu máli, en það er ekki sök læknanna.