10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í D-deild Alþingistíðinda. (3641)

101. mál, Laxá í Þingeyjarsýslu

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) :

Ég hef rætt um þetta mál við ráðunaut ríkisstj., og gerði hann þær athuganir, sem nauðsynlegar voru til undirbúnings þessu starfi. Fór hann í sumar norður og kvaðst þá mundu ganga frá þessum athugunum. Hann hefur ekki sent mér niðurstöðurnar af þessum rannsóknum, en ég geri ráð fyrir, að hann hafi þær hjá sér og geti lagt þær fyrir þá n., sem þetta mál fer til.