05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í D-deild Alþingistíðinda. (3647)
105. mál, Faxaflóasíld
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Ég ætla mér ekki að standa í deilum við hæstv. fjmrh., enda gaf ég ekkert tilefni til þess, datt það ekki í hug. Það er erfitt að skilja þann taugaóstyrk og næstum æsingu, sem greip hann. Það er misskilningur hjá honum, að ég skrifi í Þjóðviljann, en hann hefur tæpast meiri ástæðu til að kvarta undan honum en ég undan Morgunblaðinu. Við getum látið það vera nú að dengja persónulegum móðgunum hvor á annan. Ég tek ekki þátt í því nú, heldur mun ég tala um það mál, er hér liggur fyrir.
Ég vil benda hæstv. fjmrh. á það, að það getur verið gott að bera af sér óhróður með orðum, en nú getur hann gert það í verki með að láta losa þau 70 skip, sem nú bíða löndunar. Ef hann hugsar vel, mun hann sjá, að verkin tala hærra í þessu efni en margar ræður hér á þingi, og hann mundi hljóta þökk allrar þjóðarinnar. Þótt við rifumst um eitt og annað í sambandi við gjaldeyrinn, þá erum við þó allir sammála um það, að gera beri ýtrustu ráðstafanir til þess að bjarga þeim gjaldeyri á land, sem hér er um að ræða.
Ég vil mótmæla ummælum hæstv. ráðh. um Þórodd Guðmundsson. Það er ekki rétt með farið, enda mun hæstv. ráðh. hafa þetta gegnum fleiri hendur.
Ég veit, að verksmiðjustjórnin hefur gert ýmislegt, að erfitt er um skip og veður þannig, að erfitt er að koma flutningum við. True Knot hefur orðið að leita hafnar, þótt veðrið hafi ekki verið neitt óskaplegt. Þetta bendir til þess, að við verðum að skipa síldinni á land. Þá er hægt að gera fasta samninga um skip og jafnvel komast af með færri skip. Hugsanlegt er að nota mætti bara íslenzk skip. Þá er hægt að gera hagkvæma leigusamninga, eins og ég veit, að hæstv. ráðh. mun fallast á. Hæstv. ráðh. sagði, að þetta væri allt til athugunar, og ég veit, að það er rétt. En hann ætti að gera sér það ljóst, að menn, sem búnir eru að bíða í viku, eru órólegir, þótt málið sé í athugun hjá verksmiðjustjórninni, þar sem það er tekið fram, að þetta muni taka nokkra daga, og aðeins eitt pláss nefnt, í Hvítanesi, sem tekið getur við um 15 þús. málum. Minni skipin geta ekki fiskað fyrir lágmarkstryggingunni, ef ekki er hægt að koma aflanum undan. Í Reykjavík er víða hægt að finna handhæg pláss. Það mætti skipa síldinni upp á Löngulínu, og víða má rýma burt öðrum vörum til þess að fá pláss. Það er ekki rétt, að útilokað sé að geyma síldina undir beru lofti. Nú eru engir erfiðleikar á því, en ef rigningar byrja, má afla „preseninga“ til þess að verja bingina. Ef málið er tekið föstum tökum, má losa þessi 70 skip á tveimur þremur næstu dögum, sennilega tveimur dögum, og hæstv. ríkisstj. getur verið fullviss um það, að hún hefur alla þjóðina að baki sér til þess að hraða framkvæmdum sem mest. Síldin getur horfið á einum degi. Nú eru milljónir mála í Hvalfirði, en á morgun getur hún verið farin. Hér er tækifæri til þess að afla gjaldeyris, og ég vil ítreka þá beiðni mína, að málið verði tekið föstum tökum.