05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í D-deild Alþingistíðinda. (3656)

105. mál, Faxaflóasíld

Áki Jakobsson:

Herra forseti. Ég vil þá leyfa mér að fara fram á, að það verði borið undir hv. þm. sjálfa að taka ákvörðun um það, hvað þeir meta þýðingarmest, hvort þeir meta meira að vera á flokksfundum eða þeir meta meira þetta mál, sem verið var að útbýta hér, og m. a. bera það undir hæstv. sjútvmrh., hvort hann hefði ekki nægilegt vald til þess að keyra þetta mál hér áfram.