29.10.1947
Sameinað þing: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í D-deild Alþingistíðinda. (3747)
42. mál, þingmannabústaður
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Út af ræðum vil ég taka það fram, að ég svara að sjálfsögðu aðeins fyrir núverandi ríkisstj. eða það tímabil, sem liðið er, síðan hún tók við störfum. Og hv. fyrirspyrjandi hefur lýst yfir því, að hann tæki þau rök gild, að eins og högum hefði verið orðið háttað, er þessi ríkisstj. tók við, hefði hann tæplega ætlazt til, að farið væri að byggja nýjan þingmannabústað, og ég hygg, að hv. þm. V-Húnv. hafi tekið í þann streng og viðurkennt erfiðleikana. Hvað varðar byggingu nýs bústaðar, álit ég því, að núverandi ríkisstj. sé komin út úr þessum umræðum. Og þá eru eftir tveir möguleikar, eftir því sem fyrir lá, annars vegar að taka hús á leigu í þessu skyni og hins vegar að útvega þm., er þess óskuðu, svo gott húsnæði sem hægt var að fá. Ég hygg nú, að það sé miklum vandkvæðum bundið að taka hús á leigu fyrir þm., t. d. um sex mánaða skeið á árinu, og nota það svo hinn helming ársins í öðru skyni. Ég hygg, að það hefði reynzt torvelt að útvega þannig betra húsnæði en þm. eiga nú kost á að fá fyrir atbeina ríkisstj. Það má hafa það í hyggju eftirleiðis, bæði í þessari ríkisstj. og öðrum, hvort hægt væri að taka sérstakt hús á leigu fyrir þingmannabústað þann tíma, er þing situr, en persónulega hef ég enga trú á því, að með því móti verði unnt að útvega heppilegt og ódýrt húsnæði. Og þá er aðeins hinn möguleikinn eftir, að taka ekki sérstakt hús á leigu, heldur útvega þeim þm. húsnæði yfir þingtímann, er þess óska. Það hefur verið gert í tíð núverandi ríkisstj. eins og að undanförnu. Þessir þm. hafa flestir búið á Hótel Borg, og tel ég, að þeim hafi ekki verið í kot vísað. Þetta er bezta gistihúsið, sem til er á Íslandi, og aðeins fá fótmál frá alþingishúsinu. Varðandi ráðherrabústaðinn, Tjarnargötu 32, held ég fast við þá skoðun, og hef þar fyrir mér gild rök, að óhentugt sé að breyta því húsi í þingmannabústað, samtímis því að baka ríkinu annan og aukinn kostnað við að útvega þá annað húsnæði, þar sem hægt væri að halda uppi þeirri risnu, sem ríkisstj. þarf að halda uppi. Ég held að lokum, að núverandi ríkisstj. verði ekki með réttu sökuð um það að sýna áhugaleysi og viljaleysi á því að sjá utanbæjarþm. fyrir húsnæði. Framtíðin mun skera úr því, hvort heppilegra telst að byggja nýtt hús eða — sem mér þykir ólíklegt taka húsnæði á leigu.