19.11.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í D-deild Alþingistíðinda. (3804)

81. mál, opinberir starfsmenn

Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson) :

Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin. Ég vænti þess, að hæstv. stjórn sjái um, að frv. verði lagt fyrir þingið, þegar það er tilbúið um næstu mánaðamót, eins og hann upplýsti, að yrði. Fjvn. mun ræða við hæstv. ráðh. um reglugerðina, áður en gengið er frá næstu fjárlögum. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að ræða þetta frekar.