25.02.1948
Sameinað þing: 47. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í D-deild Alþingistíðinda. (3904)

909. mál, bifreiðaeign ríkissjóðs, opinberra stofnana og ríkisfyrirtækja

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd okkar fyrirspyrjenda að þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessar upplýsingar. Hann hefur vafalaust gefið allar þær upplýsingar um málið, sem hægt er að gefa á þessu stigi, en eins og hann tók fram, starfar að þessum málum n., sem væntanlega mun innan ekki mjög langs tíma geta gefið algerlega tæmandi upplýsingar um málið. Ég vænti þá, að hv. þm. hafi orðið ljóst, að ástæða sé til að taka að einhverju leyti í taumana og setja fastari reglur um þessi mál, sem virðast vera komin nokkuð í öfgar, og vona ég, að það verði gert, þegar niðurstöður n. liggja fyrir.