11.02.1948
Efri deild: 59. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (394)

146. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1948

Björn Kristjánsson:

Ég taldi ekki vonlaust, að þinghaldi yrði lokið fyrir jól, ef þ. kæmi saman 1. okt. En úr því að búið er að fella till. um, að þ. komi saman þá, sýnist mér alveg nákvæmlega jafnvonlaust, hvort sem þ. kemur saman þann 10. eða 11., og af því að 10. er sunnudagur, en þá starfar þ. ekki, er mér sama um þetta og segi já.