13.02.1948
Efri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

149. mál, fésektir

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Af því að hv. frsm. er ekki mættur, get ég skýrt frá því, að allshn. hélt fund um þetta mál, og þeir af nm., sem mættir voru á fundinum, voru allir sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. breytt. Einn nm., hv. 4. landsk. þm., var ekki viðstaddur á þeim fundi, en það var talið á fundinum, að hann einnig mundi vera samþ. þessu um samþ. málsins. En úr því að hann er hér viðstaddur, mun hann segja til þess.