11.11.1947
Neðri deild: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

21. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl.

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. — Ég þarf ekki að hafa mörg orð um frv. þetta, sem er staðfesting á brbl., sem ríkisstj. setti í sumar, og frv. hefur gengið í gegnum hæstv. Ed. óbreytt. Eins og hv. þm. sjá, þá er fyrri l. svo breytt í þessu frv., að færður er aftur sá tími, sem ákveðið var, að verðlag á landbúnaðarafurðum ætti að ganga í gildi. Landbn. beggja þingd. hafa orðið sammála um að leggja til, að staðfesting þessara brbl. verði samþykkt, og leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.