15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (471)

23. mál, bændaskólar

Hermann Jónasson:

Ég er óánægður með frv., m.a. vegna þess, að skv. því verður allt of lítil kennsla í meðferð véla, svo að ég get tæplega samþ. frv. Þó er það betra en ekki neitt, og segi ég því nei við því að vísa málinu til ríkisstj.