13.02.1948
Neðri deild: 56. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (504)

148. mál, meðferð einkamála í héraði

Sigurður Kristjánsson:

Ég verð að viðurkenna, að ég villtist á þessu frv. vegna fyrirsagnar þess. Þetta frv. er um breyt. á l., sem sett voru í fyrra, og ég var einn af flm. þess frv. En ég er alveg á móti þessu frv., þó að það hafi farið fram hjá mér, og mun ég gera grein fyrir afstöðu minni við 3. umr. Ég segi nei.