17.11.1947
Efri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (52)
21. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl.
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. — Ástæðan til þess, að þessi nýja gr. er komin inn í þetta frv., er sú, að fyrir nokkru, þegar málið var langt áleiðis komið í hv. Ed., komu til okkar á fund menn úr stjórn eggjasölusamlagsins, sem nær hér yfir Reykjavík og nágrenni og austur um sveitir, og er sá félagsskapur alltaf að ná yfir stærra og stærra svæði. Þessir menn óskuðu eftir því, að framleiðsluráði yrði falið að hafa með höndum verðskráningu á framleiðsluvörum þeirra. Þeir færðu fyrir því ýmis rök. Ég tók þessari málaleitun þeirra vel og lagði hana fyrir hv. landbn. Nd., sem féllst á að taka þessa heimild inn í l.
Þeir fóru nú fram á það að vísu um leið, að þegar þetta væri ákveðið, þá væri um leið ákveðið, að þeir fengju sinn fulltrúa inn í framleiðsluráð, en hv. landbn. og ég vorum sammála um, að það væri of mikil röskun á þessu fyrirkomulagi að taka slíkt inn í l., en þeim var bent á, að það væri sjálfsagt, að þegar mál eggjaframleiðenda væru til meðferðar í framleiðsluráði, ættu þeir þar fulltrúa til þess að flytja sitt mál þar. Við töldum, að slíkt væri hægt að ákveða með reglugerð, en ekki beint ástæða til þess að ákveða það með l.
Það er rétt, sem kom fram í ræðu hv. 1. þm. N.- M., að þegar þessi mál voru í undirbúningi, þá var talað um það, hvort ætti að taka grænmetisframleiðsluna og jafnvel eggjaframleiðsluna inn í þessi sölumeðferðarákvæði. En það þótti þó réttara á þessu stigi málsins að sleppa þessu hvoru tveggja, og ekki sízt grænmetisframleiðslunni, af þeirri ástæðu, sem hv. þm. tók fram, að á vissum tímum er svo mikil og stöðug breyting á verðlagi grænmetis eftir því, hve mikið berst á markaðinn, að það þarf oft að setja vöruna niður, af því að hún þolir ekki geymslu og verður að seljast fljótlega. Það þótti því of þunglamalegt að fela framleiðsluráði verðskráningu á þessari vöru. Hitt þótti þó rétt, úr því að ósk kom um það frá eggjaframleiðendum, að taka þetta inn á verksvið framleiðsluráðs, að um leið væri gefið leyfi til þess, að grænmetisframleiðslan yrði verðskráð á sama hátt, ef óskir um það kæmu síðar frá sölufélagi grænmetisframleiðenda, þó að það sé ekki vitanlegt nú sem stendur, að búizt sé við þeirri ósk. Það var rætt um það á sínum tíma, að ef grænmeti væri tekið til verðskráningar, þá væri á sama hátt og með eggjaframleiðendur fulltrúum grænmetisframleiðenda gefinn kostur á því, þó að þeir ættu ekki sæti í framleiðsluráði, að mæta á fundum þess til leiðbeiningar og tillagna, ef slík mál kæmu þar til meðferðar. Ég vildi aðeins skýra frá því, hvers vegna þessi gr. er komin í frv.
Ég skal taka það fram, að brtt. hv. þm. Barð. tel ég sjálfsagða orðalagsbreytingu, en þar er ekki um neina efnisbreytingu að ræða, því að það er sama sem vakir fyrir hv. þm. og n., og tel ég orðalag brtt. betra. Ég vil spyrja hæstv. forseta, hvort hann sjái sér ekki fært að taka þetta sem leiðréttingu á orðalagi, til þess að ekki þurfi að flækja málinu til annarrar d. vegna þessarar sjálfsögðu breytingar.