02.03.1948
Efri deild: 72. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (540)

134. mál, eignakönnun

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Ég get borið formanni nefndarinnar þetta, sem hv. þm. sagði. En frá mínum bæjardyrum séð virðist mér leiðin hljóta að vera sú, að menn snúi sér til fjármálaráðuneytisins, sem sett er yfir nefndina og gæti tekið í taumana, ef ástæða væri til. Annars finnst mér ekki eiga við að hnýta þessum óskyldu ákvæðum aftan við þessi bráðabirgðalög, sem hér á að staðfesta, og teldi réttara, að þau kæmu fram sem sérstakt frv. En ég skal minnast á þetta við form. n. fyrir 3. umr.