20.02.1948
Neðri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (653)

61. mál, sementsverksmiðja

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vildi mælast til þess, þar sem hæstv. atvmrh. hét því í ræðu sinni, að áætlun fjárhagsráðs mundi verða útbýtt fljótlega hér á Alþ., að frestað yrði umr. um þetta mál, því að erfitt er að ræða það raunhæft unz sú áætlun liggur fyrir.