20.02.1948
Neðri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (654)

61. mál, sementsverksmiðja

Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil skjóta því til hv. þm. Siglf. (ÁkJ), hvort honum finnist ekki rétt, þar sem þetta er 2. umr. um málið, að taka till. sína aftur til 3. umr. Það mundi verða til þess að hraða afgreiðslu málsins, en nauðsynlegt, að hún verði sem greiðust, og hætta á, að öll töf yrði því til óþurftar, enda gerði þá iðnn. slíkt hið sama.