20.02.1948
Neðri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

61. mál, sementsverksmiðja

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vildi heldur, að 2. umr. yrði frestað, því að ef þm. fá áætlun fjárhagsráðs, verða væntanlega talsverðar umræður um málið á þeim grundvelli, og væri eðlilegt, að þær yrðu þá við 2. umr. Ég sé ekki. að það mundi verða til að tefja málið, heldur mundi það þvert á móti tryggja framgang þess.