02.03.1948
Efri deild: 72. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (681)

61. mál, sementsverksmiðja

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég verð að segja, að mér finnst mjög óviðkunnanlegt. ef það er ætlun hæstv-. ríkisstj. að kasta þessu stórmáli hér inn í d. án þess að virða það svo mikils, að neinn hæstv. ráðh. sjáist í d. og án þess að nokkurt orð sé sagt til skýringar þessu margra milljóna máli og mikla atvinnumáli. Og ég vil lítt una því, að hæstv. ríkisstj. ræði ekki þetta mál við 1. umr. hér.