02.03.1948
Efri deild: 72. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

61. mál, sementsverksmiðja

Forseti (BSt):

Ég er nú hv. 3. landsk. þm. sammála um þetta. En það er með hæstv. ráðh. eins og aðra hv. þm., að það er ekki gott að ráða við það, ef menn mæta ekki á deildarfundum hér, því að forseti hefur ekkert refsivald eða annað vald til þess að beita til að þvinga hv. þm. til þess að mæta á þingfundum. Eina refsivaldið, sem í þingsköpum var, sem forseti hafði í þessu efni, er þaðan horfið, og liggur þetta mál fyrir til umr.