13.03.1948
Sameinað þing: 54. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (882)

129. mál, fjárlög 1948

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur ekki vald til að taka till. 461 aftur. En vegna fyrirspurnar hæstv. ráðh. vil ég taka fram, að margir hv. þm. og ráðherrar hafa fengið flutt yfir og jafnvel skipt, og hefur fjvn, ekkert við það að athuga. Ég furða mig því á tilmælum hæstv. ráðh. og sé ekki ástæðu til að taka till. aftur.