30.10.1947
Efri deild: 11. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (90)

52. mál, gjaldaviðauki 1948

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Ég þarf nú í rauninni ekki að taka til máls, því að í aths. er skýrt frá, hver tilgangurinn er með frv., sem er sá sami sem með frv. næst á undan. Þetta eru lagaákvæði, sem eru framlengd frá ári til árs, og er enn farið fram á, að svo sé gert.

Ég hef svo ekki meira um þetta að segja, en óska, að málinu verði vísað til fjhn. að lokinni þessari umr.