23.03.1948
Neðri deild: 82. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (983)
182. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég tók eftir, að hv. frsm. sjútvn., þm. Borgf., sagði í sinni framsöguræðu, að það væri skilningur sjútvn., að með þeim breyt., sem hún legði til á frv., væri það tryggt, að eins og frv. þá væri orðið, fælist ekki í því nein heimild til neinnar skerðingar á landhelginni, hvorki almennt né heldur í sambandi við samninga við aðrar þjóðir.
Ég vildi óska þess, að hæstv. ríkisstj. hæstv. forsrh., sem hér mun nú einn vera við af hæstv. ríkisstj. — vildi staðfesta það, að þetta væri einnig skoðun ríkisstj. Ég ræddi hér í nótt nokkuð um þetta mál. Og ég vil segja, að hvað aðra hlið snertir, sem ég gagnrýndi, þá mundi þetta fullnægja því, sem ég óskaði ettir, þannig að ég mun þá ekki, a.m.k. að svo stöddu, hefja umr. um þetta frv., ef hæstv. ráðh. staðfesti, að þetta væri skoðun ríkisstj., sem hv. þm. Borgf. nú lýsti fyrir hönd sjútvn.