03.12.1947
Neðri deild: 26. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

52. mál, gjaldaviðauki 1948

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Fjhn. leggur til, að frv. þetta verði samþ. með breyt. Á síðasta þingi bar n. fram breyt. við sams konar frv., og hím var þá samþ. mótatkvæðalaust. En nú hafa orðið þau mistök, er frv. var borið fram aftur, að prentað hefur verið hið upprunalega frv. án þeirrar breyt., sem búið var að samþykkja í fyrra. N. leggur því til, að frv. verði nú samþ. með þessari breyt., sem er raunverulega ekki breyt. frá gildandi l., þó að það líti út sem breyt.