07.05.1949
Efri deild: 99. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

184. mál, hlutatryggingarsjóður bátaútvegsins

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Þó að ég telji, að bætur samkvæmt 9. gr. séu of lágar, mun ég segja já, þar sem till. um breyt. á þessu hefur verið felld.

Brtt. 614,8 tekin aftur.

10. gr. samþ. með 17 shlj. atkv.

Brtt. 614,9 felld með 9:1 atkv.

11. gr. samþ. með 15 shlj. atkv.

12: 13. gr. samþ. með 17 shlj. atkv.

Brtt. 614,10 felld með 9:7 atkv.

14. gr. samþ. með 11:2 atkv.

Brtt. 614,11 tekin aftur til 3. umr.

15.–16. gr. samþ. með 16 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 15 shlj. atkv.

Brtt. 670 og 671 voru of seint fram komnar. — Afbrigði leyfð og samþ. með 11 shlj. atkv.