13.05.1949
Neðri deild: 108. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)

184. mál, hlutatryggingarsjóður bátaútvegsins

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá Ed. Það er borið fram til þess að fullnægja skuldbindingum, sem gerðar voru við bátaútvegsmenn í vetur. Ég ætla ekki að ræða málið efnislega nú, því að ég tel heppilegra, að sjútvn. fjalli um það fyrst. Án frekari formála óska ég, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og sjútvn.