14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

27. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hér er um að ræða staðfestingu á brbl. um 5 aura hækkun á benzínskattinum. N. leggur til, að frv. verði samþ., enda tjáir ekki annað, því að árið, sem frv. gildir fyrir, er að líða á enda. Það er einnig væntanlegt síðar annað frv. um framlengingu skattsins fyrir næsta ár.